Hjá Medicus tekur hjúkrunarfræðingur á móti tilkynningum starfsmanna um veikindi og veitir ráðgjöf eftir þörfum og óskum hvers starfsmanns. Vinnuveitandi hefur auðveldan aðgang að tölfræðiupplýsingum um veikindi og fjarvistir á vinnustað. Skráning og ráðgjöf vegna veikinda starfsmanna er til þess fallin að fækka veikindadögum og gefa vinnuveitanda tækifæri til þess að bæta og breyta vinnuumhverfi og rekstri.
- Skráning á veikindum/fjarvist
- Ráðgjöf vegna veikinda
- Tölfræði og ráðgjöf til vinnuveitanda vegna fjarvista