Veikinda- og fjarvistarskráning
Medicus veitir þjónustu sem einfaldar skráningu veikinda og felur í sér faglega ráðgjöf til starfsmanna og vinnuveitenda. Þjónustan tryggir betri yfirsýn yfir fjarvistir og styður við markviss viðbrögð og bætt vinnuumhverfi.
Skýr yfirsýn og markviss ráðgjöf
Hjá Medicus taka hjúkrunarfræðingur á móti tilkynningum starfsmanna um veikindi og veita ráðgjöf eftir þörfum og óskum hvers starfsmanns. Vinnuveitandi hefur auðveldan aðgang að tölfræðiupplýsingum um veikindi og fjarvistir á vinnustað. Skráning og ráðgjöf vegna veikinda starfsmanna er til þess fallin að fækka veikindadögum og gefa vinnuveitanda tækifæri til þess að bæta og breyta vinnuumhverfi og rekstri.