Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Heilsufarsskoðun

Heilsufarsskoðanir fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem fela í sér mat á líkamlegri og andlegri heilsu, ásamt ráðgjöf um úrbætur. Markmiðið er að styðja við bætta líðan, greina áhættuþætti og fyrirbyggja heilsufarsvanda.
B4d9f6463d51db4c27a8d6e5b97c1bacee67d7ba

Heilsufar og ráðgjöf

Medicus býður upp á heilsufarsskoðanir fyrir fyrirtæki og einstaklinga.  Í samráði við trúnaðarlækni og hjúkrunarfræðing er boðið upp á skoðun og heilsufarsmælingu sem er viðeigandi fyrir hvern starfsmannahóp eða einstakling.  Medicus mun ekki síst leggja áherslu á mat á streitu, svefnvanda og andlegri heilsu til jafns á við almennar heilsufarsskoðanir. Auk skoðunar er veitt ráðgjöf varðandi heilsuna og hugsanleg úrræði.

Atriði

  • Almenn heilsufarsskoðun
  • Almenn heilsufarsskoðun og viðtal við heilbrigðisstarfsmann
  • Mat á andlegri heilsu og ráðgjöf
  • Mat á líðan og álagi í vinnu

Heilsufarsskoðun 1

Farið yfir almennt heilsufar, andlega líðan, streitu, svefngæði, hæð, þyngd, mittismál, BMI, mældur blóðþrýstingur, mælt kólesteról úr fingri og blóðsykur úr fingri.
Hjúkrunarfræðingur sér um að gera skoðun og fara yfir þessi atriði en trúnaðarlæknir er kallaður til sé þess óskað.

Heilsufarsskoðun 2

Farið yfir almennt heilsufar, andlega líðan, streitu, svefngæði, hæð, þyngd, mittismál, BMI, mældur blóðþrýstingur, mælt kólesteról úr fingri og blóðsykur úr fingri.
Hjúkrunarfræðingur sér um að gera skoðun og fara yfir þessi atriði en trúnaðarlæknir er kallaður til sé þess óskað.

Heilsufarsskoðun 3

Enn ítarlegri en heilsufarsskoðun 3, tekið hjartalínurit, gert öndunarfærapróf, fitu-og vöðvamæling og fleira. Starfsmaður fær niðurstöður á skriflegu formi með ráðleggingum um úrbætur sé þess þörf og hittir lækni.

Heilsufarsskoðun vegna starfa erlendra aðila á Íslandi

Fyrirtæki leita í auknum mæli til Medicus til að fá útgefin vottorð vegna starfa erlendra starfsmanna í Íslandi. Skv.lögum þarf starfsmaður að koma í heilbrigðisskoðun í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga nr. 19/1997 og reglugerðar nr. 131/1999.

Starfsmaður kemur þá til okkar í læknisskoðun og gert er berklapróf hjá einstaklingum yngri en 35 ára en röntgenmynd af lungum hjá þeim sem eru eldri en 35 ára.

Gerð er blóðprufa þar sem leitað er að smitsjúkdómum eins og HIV, lifrarbólgu B og C og sárasótt.

Einstaklingar gætu þurft að fara í fleiri rannsóknir sé ástæða til en koma svo í endurkomu 2-3 dögum eftir fyrstu komu, til aflesturs berklaprófs.

Sérstakar skoðanir

Endilega hafið samband séu einhverjar spurningar varðandi sérstakar skoðanir starfsfólks

Hafa samband