Heildræn þjónusta á sviði heilsuverndar sem felur í sér forvarnir, mat og ráðgjöf fyrir starfsfólk og vinnuveitendur. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, skýra upplýsingagjöf og úrræði sem styðja við bætta heilsu og vinnuumhverfi.
Veikinda- og fjarvistaskráning
Hjá Medicus tekur hjúkrunarfræðingur á móti tilkynningum starfsmanna um veikindi og veitir ráðgjöf eftir þörfum og óskum hvers starfsmanns. Vinnuveitandi hefur auðveldan aðgang að tölfræðiupplýsingum um veikindi og fjarvistir á vinnustað.
Trúnaðarlækningar
Medicus veitir almenn þjónustu trúnaðarlæknis vegna veikinda starfsmanna. Ráðgjöf og mat vegna langtímaveikinda og endurtekinna skammtímaveikinda bæði fyrir vinnuveitanda og starfsmann.
Bólusetningar
Medicus veitir almenna þjónustu og ráðgjöf varðandi bólusetningar til fyrirtækja og einstaklinga. Bólusetning vegna inflúensu í samræmi við leiðbeiningar embættis sóttvarnarlæknis.
Heilsufarsskoðun
Medicus býður upp á heilsufarsskoðanir fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Í samráði við trúnaðarlækni og hjúkrunarfræðing er boðið upp á skoðun og heilsufarsmælingu sem er viðeigandi fyrir hvern starfsmannahóp eða einstakling.
Námskeið og fræðsla
Fræðsla sem styrkir starfsfólk og stuðlar að betri líðan á vinnustað.
Sjómannavottorð
Læknar Medicus veita þjónustu og gefa út sjómannavottorð í samræmi við reglugerð samgöngustofu.